.

.

Umhverfisstefna Hvolsskóla

Umhverfismennt í Hvolsskóla

Umhverfi  og náttúra hafa mjög mótandi áhrif á líf mannanna. Að hafa skilning á þeim lögmálum sem þar ríkja ásamt því að bera virðingu fyrir þeim er aldrei mikilvægara en nú og því  leggur Hvolsskóli áherslu á umhvefismennt og útikennslu.

Í umhverfismennt í Hvolsskóla felst m.a.:

 

Umhverfismennt

·         Í umhverfismennt byggir Hvolsskóli stefnu sína á þeirri hugmyndafræði að nemendur upplifi og njóti þess sem er athyglisvert, skemmtilegt og fallegt í náttúrunni sem mest á vettvangi.

·         Hann leggur áherslu á að efla með nemendum sínum virðingu fyrir umhverfinu, hjálpa þeim að skilja almenn náttúrulögmál, samhengi í náttúrunni og hringrásir hennar og þarfir allra lífvera.

·         Hvolsskóli leggur áherslu á að nemendur uppgötvi og njóti margbreytileika og fegurðar íslenskrar náttúru sem best og öðlist staðgóða þekkingu á henni.

·         Hvolsskóli leggur áherslu á að nemendur og starfsmenn flokki úrgang til endurvinnslu og endurnýtingar.

 

Útikennsla

·         Hvolsskóli leggur áherslu á útikennslu í sem flestum námsgreinum

·         Hann leggur áherslu á að nýta fjölbreytt umhverfi sitt til að auðga kennslu skólans og tengja hana samfélagi og náttúru.

·         Hvolsskóli leggur áherslu á útiveru nemenda og stuðlar þannig að bættu heilsufari þeirra, bæði til líkama og sálar.

 

Umhverfisstefna Hvolsskóla - áhersluatriði

Hvolsskóli setti sér umhverfisstefnu haustið 2006. Aðal áhersluatriði í umhverfisstefnu skólans eru í byrjun fyrst og fremst þau að:

·         Spara pappír, nýta hann vel og nota blöð báðum megin.

·         Flokka afgangspappír í þar til gerða dalla í: pappír til endurvinnslu í skólanum, gæðapappír (blöð og tímarit) og pappír til niðurrifs.

·         Draga úr notkun einnota umbúða - skólamjólk er keypt í 10 l umbúðum og nemendur drekka úr glösum sem þvegin eru á staðnum.

·         Skola allar fernur sem berast í hús og fara með í endurvinnslu.

·         Jarðgera alla lífræna afganga í moltukassa skólans, svo sem afganga af nesti nemenda, matarafganga úr eldhúsi og sag úr smíðastofu.

·         Gæta þess að spilliefni fari ekki í almennt rusl (málning og fleira).

·         Spara rafmagn - nota dagsbirtu og hafa slökkt í herbergjum þar sem enginn er að störfum og slökkva á  tækjum sem ekki er verið að nota.

·         Draga úr vatnsnotkun og láta vatnið ekki renna að óþörfu.

·         Hvetja nemendur og starfsfólk til að draga úr notkun mengandi efna í skóla jafnt sem heima fyrir og bæta heilsuna með því að ganga í skólann sé þess kostur.