.

.

Gildi

Börn í Hvolsskóla eiga rétt á að fá þá bestu menntun sem möguleg er hér á landi.

 

Í Hvolsskóla ríkir gagnkvæm virðing í samskiptum fólks sem birtist m.a. í starfsháttum meðal nemenda og starfmanna sem einkennast af samvinnu og lýðræðislegri ákvarðanatöku.

 

Framtíðarsýn

Í Hvolsskóla er einstaklingurinn í brennidepli sem birtist í einstaklingsmiðuðu námi, samvinnu og sveigjanleika í kennsluháttum.

 

Miða skal við þarfir og getu hvers og eins, með það að markmiði að stuðla að hámarksárangri.


Í skólastarfinu er lögð áhersla á samvinnu við grenndarsamfélagið, að kalla eftir og virða skoðanir fólks í samfélaginu.


Litið er á samfélagið allt sem námsvettvang fyrir nemendur.

 

Nemendur skulu tileinka sér sjálfsaga, sjálfsvirðingu og raunhæft sjálfsmat.

 

Gagnkvæm virðing einkenni öll samskipti sem skilar sér m.a. í aukinni ánægju nemenda og kennara.

 

Hvolsskóli er umhverfisvænn skóli.

 

Námið er skipulagt í nánum tengslum við umhverfið og náttúruna með virðingu fyrir hvorutveggja að leiðarljósi.