.

.

Einstaklingsmiðun

Í Hvolsskóla er einstaklingsmiðað nám skilgreint eftirfarandi

  • Með einstaklingsmiðuðu námi er átt við viðleitni kennarans til þess að bregðast stöðugt við námslegum þörfum hvers nemanda. Markmið einstaklingsmiðaðra kennsluhátta er að hver nemandi nái hámarks þroska og árangri.
  • Einstaklingsmiðuð kennsla er sveigjanleg. Einstaklingsmiðuð kennsla á rætur sínar að rekja til árangurs og stöðugs mats á námsþörfum nemandans.
  • Einstaklingsmiðun er hægt að nálgast út frá inntaki, framkvæmd og afrakstri. Út frá þessum þáttum getur kennarinn einstaklingsmiðað með hliðsjón af námsgrunni nemenda, áhugasviði þeirra og námssniði.
  • Í Hvolsskóla leggjum við áherlsu á fjölbreyttar kennsluaðferðir. Við leggjum áherslu á að kennarinn er kennari og meginhlutverk hans er að kenna nemendum. Við leggjum áherslu á kennslu í litlum hópum, þ.e.a.s. að kennarinn skipuleggi starfið í kennslustofunni þannig að þeir tali við lítinn hóp í einu og skipuleggi nám og virkni annarra nemenda með það í huga.